Jólaþorpið í Hafnarfirði liggur nú í dvala en mun vakna aftur til lífs á aðventunni 2010. Þorpið verður með svipuðu sniði og áður, fagurlega skreytt tuttugu lítil hús þar sem boðið verður upp á margt sem tengist jólunum á einn eða annan hátt. Jólaþorpið er miðpunktur þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða á aðventunni og er staðsett á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar. Alla opnunardaga verður fjörug skemmtidagskrá þar sem boðið verður uppá skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.
Byrjað verður að taka á móti pöntunum í jólahúsin í enda ágústmánaðar og er áhugasömum bent á að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Mikið fjör í Jólaþorpinu sunnudaginn 13. desember
Fullt var í Jólaþorpinu síðastliðinn sunnudag enda var sumarveður, 11 stiga hiti og mikið stuð.
Fjölbreytt dagskrá var á sviðinu og klukkan 14:00 komu fram: Sopranos Tríóið, 3 raddir ásamt því að Alan Jones og Kristín Wium úr hljómsveitinni Dresscode tóku lagið.
Síðan kl. 15:00 byrjaði bráðfjörugt jólaball með Jóla-Jóhönnu þar sem hún fékk Giljagaur til þess að mæta og dansa við krakkana. Grýla var ekki langt frá syni sínum og skemmti sér vel í þorpinu og keypti jólagjöf handa Leppalúða. En eins og allir vita þá fær hann ekki oft tækifæri til þess að koma til byggða þannig að Grýla kaupir alltaf eitthvað skemmtilegt handa honum fyrir að passa heimilið og þá jólasveina sem ennþá eru uppi á fjalli.
Hér getið þið séð myndir frá síðasta sunnudegi.
Glæsileg dagskrá aðventuhelgina 12-13. desember í Jólaþorpinu.
Í Hafnarfirði kúrir lítið Jólaþorp þar sem margt er um að vera. Fjöldi fólks hefur heimsótt þorpið og tekið þátt í hátíðahöldunum hingað til. Áfram verður mikið fjör og á laugardaginn verða fjölbreytt skemmtiatriði í boði eins og; Lalli töframaður, leikþáttur um Rauðhettu, frábærir hafnfirskir kórar og söngvarinn Ívar Helgason sem syngur hugljúf jólalög fyrir þorpsgesti.
Á sunnudaginn er svo spennandi dagskrá, þar koma fram 3 raddir, Sopranos tríóið og hressir strákar úr Fimleikafélaginu Björk sem sýna listir sínar í stökk-íþróttinni „parkour”. Jóla-Jóhanna stígur á stokk kl. 15 og sér um eina alvöru jólaballið sem haldið er undir berum himni. Úti-jólaböll Jólaþorpsins hafa slegið í gegn og eru frábært tækifæri fyrir börn og fullorðna til að dansa, syngja og njóta skemmtilegrar samverustundar á aðventunni.
Í litlu jólahúsunum er ýmislegt í boði sem tilvalið er að setja í jólapakka. Alls konar gjafavara, heimilisiðnaður, handverk og hönnun, ásamt gómsætum veitingum líkt og heitu kakói, smákökum og vöfflum. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Jólaþorpinu og notið aðventunnar í sannkölluðu jólaskapi.
Jólaþorpið er opið frá 13-18 allar helgar fram til jóla auk kvöldopnunar 21.-23. desember. Næg bílastæði, ferskt loft og ekkert stress!
Jólaþorpið í Hafnarfirði mun rísa í sjöunda sinn í desember. Undirbúningur er í fullum gangi og föstudaginn 4. desember opnar Jólaþorpið. Þorpið verður með svipuðu sniði og áður, fagurlega skreytt tuttugu lítil hús þar sem boðið verður upp á margt sem tengist jólunum á einn eða annan hátt. Opið verður allar helgar í desember auk kvöldopnunar á Þorláksmessu. Jólaþorpið er miðpunktur þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða á aðventunni og er staðsett á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar. Alla opnunardaga verður fjörug skemmtidagskrá þar sem boðið verður uppá skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.
Jólaþorpið óskar eftir hressum aðilum eða hópum sem hafa áhuga á að skemmta í þorpinu. Ýmislegt kemur til greina hvort sem um er að ræða söng, leikþátt, hljóðfæraspil eða allt þar á milli. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu menningar- og ferðamála í síma 585-5775 eða senda tölvupóst á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Jólaþorpið verður opið sem hér segir:
4. desember 19:00-22:00
5. og 6. desember: 13:00-18:00
12. og 13. desember: 13:00-18:00
19. og 20. desember: 13:00-18:00
23.desember: 18:00-22:00
Með bestu kveðju,
Jólaþorpið í Hafnarfirði
Jólaþorpið í Hafnarfirði á sjö ára afmæli árið 2009. Þorpið hefur risið á aðventunni á hverju ári frá 2003 og er nú orðinn ómissandi þáttur í jólahátíð Hafnfirðinga og þó víðar væri leitað, þar sem það er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Í ár verður opið í Jólaþorpinu allar helgar frá 5.desember til jóla auk opnunar á Þorláksmessukvöld. Fagurlega skreytt jólahús mynda Jólaþorpið og munu bjóða uppá handverk, jólavarning og annað sem tengist jólunum. Fjölbreytt skemmtidagskrá mun eiga sér stað uppá sviði alla opnunardaganna til þess að létta lund og fá gesti í jólaskap.
Komdu þér í jólaskap með okkur!


